Fara beint í efnið

Póstreglur

Verslanir í Eldra senda markaðspóst, svo sem fréttabréf og tilboð, úr kerfinu. Þessar reglur gilda um allan markaðspóst úr kerfinu. Þær eru 14. grein þjónustuskilmála Eldra Studio.

Verslunin er sendandinn

Verslunin er sendandi og ábyrgðaraðili markaðspósts síns. Hún ber ábyrgð á efni hans, á því hvenær hann er sendur og á því hverjum hann er sendur. Kerfið setur nafn og heimilisfang úr stillingum verslunarinnar í hvern markaðspóst (5. mgr. 94. gr. laga nr. 70/2022) og verslunin heldur þeim upplýsingum réttum.

Aðeins til þeirra sem báðu um hann

Reglur Eldra eru strangari en lögin. Markaðspóstur úr kerfinu fer aðeins til þeirra sem hafa beðið um hann, á annan hvorn þennan hátt:

  • þeir hökuðu við reit sem ekki var hakað við fyrir fram, í greiðsluferli vefverslunar eða við kassann;

  • þeir skráðu sig og staðfestu skráninguna með tölvupósti.

Eldra býður ekki upp á undantekninguna fyrir eigin viðskiptavini verslunar í 2. mgr. 94. gr. laga nr. 70/2022, þótt lögin heimili hana.

Engir keyptir listar

Keyptir eða leigðir listar, eða listar sem safnað er af netinu, eru aldrei leyfðir.

Verslanir flytja ekki inn póstlista. Þegar verslun flytur sig úr öðru kerfi flytur starfsfólk Eldra inn lista hennar, og aðeins þá einstaklinga sem skráð samþykki liggur fyrir um. Verslunin varðveitir sönnun fyrir hverju samþykki og afhendir Eldra hana sé þess óskað.

Kvartanir og varanlegar höfnunir stöðva sendingar

Eldra stöðvar markaðspóst verslunar, sjálfkrafa eða handvirkt, ef kvartanir eða varanlegar höfnunir (hard bounces) fara yfir mörk Eldra. Mörkin eru aldrei hærri en 0,1% kvartanir og 4% varanlegar höfnunir af því sem verslunin sendi síðustu 30 daga, hafi hún sent að minnsta kosti 1.000 skeyti á þeim sömu 30 dögum. Stöðvunin varir þar til starfsfólk Eldra hefur farið yfir málið.

Reglur þess sem sendir póstinn

Verslunin fylgir notkunarskilmálum þess aðila sem sendir póst hennar, eins og þeir eru á hverjum tíma: Amazon SES og, á meðan Eldra notar það enn, Resend. Eldra má stöðva sendingar verslunarinnar tafarlaust ef sá aðili krefst þess eða ef verslunin fylgir ekki skilmálum hans.

Bannskrá Þjóðskrár

Af persónuupplýsingum geyma póstlistarnir í kerfinu netföng og fornöfn. Eldra ber lista ekki saman við bannskrá Þjóðskrár Íslands. Hvíli sú skylda á versluninni (15. gr. laga nr. 140/2019), til dæmis þegar hún markaðssetur út frá eigin skrám með nöfnum, heimilisföngum, símanúmerum eða kennitölum, sinnir hún henni sjálf og á eigin kostnað.

Þegar reglurnar eru brotnar

Brjóti verslun þessar reglur má Eldra loka aðgangi hennar tafarlaust, að hluta eða öllu leyti (18.2 í skilmálunum). Brjóti hún þær aftur eftir skriflega viðvörun, eða þannig að það skaði aðrar verslanir, kerfið eða þriðja aðila, má Eldra rifta samningnum (10.2).

Ef munur er á þessari síðu og skilmálunum gilda skilmálarnir.