Öryggi og vinnsla gagna
Verslanir sem nota Eldra reka vef sinn, vefverslun og afgreiðslukassa í Eldra Studio, kerfi Eldra Tech ehf., kt. 500826-1770. Þegar þú verslar við slíka verslun er hún seljandinn og ábyrgðaraðili persónuupplýsinga þinna. Eldra vinnur upplýsingarnar fyrir verslunina, sem vinnsluaðili samkvæmt vinnslusamningi við hana.
Hvar gögnin eru
Kerfið er rekið í Microsoft Azure, á svæðinu Sweden Central í Svíþjóð. Afrit af gagnagrunninum eru einnig geymd á öðru Azure-svæði innan EES.
Skrár og myndefni verslunarinnar og reikningar í PDF eru geymd í Cloudflare R2 innan ESB.
Umferð um vef verslunarinnar fer um net Cloudflare og er afgreidd á þeim stað sem næstur er gestinum, sem getur verið utan EES.
Tölvupóstur úr kerfinu, svo sem pöntunarstaðfestingar og kvittanir, er sendur með Resend í Bandaríkjunum og gögnin um hann eru geymd þar. Amazon SES í Stokkhólmi tekur við þegar Eldra flytur póstinn.
Á hvaða grundvelli gögnum er miðlað út fyrir EES kemur fram á síðunni Undirvinnsluaðilar.
Dulkóðun
Öll umferð til og frá kerfinu um netið er dulkóðuð með TLS. Gagnagrunnurinn og skráageymslan eru dulkóðuð í geymslu.
Kortagreiðslur
Þú greiðir með korti hjá greiðsluþjónustu verslunarinnar, Teya, Straumi eða Verifone, samkvæmt samningi verslunarinnar við hana. Kortaupplýsingar eru slegnar inn hjá greiðsluþjónustunni, ekki í Eldra. Eldra sendir greiðsluþjónustunni fjárhæð og tilvísun.
Undirvinnsluaðilar Eldra
Eldra notar undirvinnsluaðila, svo sem Microsoft Azure og Cloudflare. Gildandi listi, með því sem hver þeirra gerir og hvar gögnin eru, er á síðunni Undirvinnsluaðilar. Þar eru einnig taldar upp þær þjónustur sem verslunin tengir sjálf, til dæmis greiðslu-, afhendingar- og bókhaldsþjónustur. Þær starfa samkvæmt samningi verslunarinnar við þær.
Hver ber ábyrgð á hverju
Verslunin ber ábyrgð á:
söluskilmálum sínum og þeim upplýsingum sem þú átt að fá áður en þú kaupir;
rétti þínum til að falla frá kaupum á netinu innan 14 daga og úrræðum vegna galla;
markaðspósti sínum, sem fer aðeins til þeirra sem hafa beðið um hann;
fræðslu um vinnslu persónuupplýsinga þinna og svörum við beiðnum þínum um þær.
Eldra ber ábyrgð á, sem vinnsluaðili:
að vinna persónuupplýsingarnar aðeins samkvæmt fyrirmælum verslunarinnar og nota þær ekki í eigin tilgangi, að frátöldum kerfis- og öryggisskrám sem tryggja öryggi kerfisins;
öryggi kerfisins og þeim ráðstöfunum sem lýst er í vinnslusamningnum;
að tilkynna versluninni öryggisbrest sem snertir gögn hennar eigi síðar en 48 klukkustundum eftir að Eldra verður hans vör;
undirvinnsluaðilum sínum.
Kerfis- og öryggisskrár
Kerfis- og öryggisskrár hýsingarumhverfisins geyma tæknileg gögn um beiðnir, svo sem IP-tölu og tíma. Eldra er ábyrgðaraðili þeirra og notar þær aðeins til að tryggja öryggi kerfisins og rannsaka atvik (f-liður 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar). Kerfisskrár eru geymdar í 7 til 30 daga og öryggisskrár í 365 daga. Um rétt þinn gagnvart Eldra má lesa á síðunni Persónuvernd.
Spurningar
Spurningar um kaup þín og persónuupplýsingar sendir þú fyrst til verslunarinnar. Berist Eldra beiðni frá þér framsendir Eldra hana til verslunarinnar. Spurningar um kerfið sjálft má senda á privacy@eldra.is og ábendingar um öryggismál á security@eldra.is.
Þjónustuskilmálar Eldra og vinnslusamningurinn sem verslanir gera við Eldra eru á eldra.app/terms.