Sagan
Þetta byrjaði með einni spurningu.
Frændi vildi prófa að selja vörurnar sínar á netinu. Hversu flókið gat það verið?
01 Teikningin
Ein einföld spurning
Reksturinn var rótgróinn: verslun, heildsala og sérsmíðaður vefur. Næsta skref var vefverslun, og hún átti að vera einföld.
Fyrsta hugmyndin var að setja upp Shopify og tengja það við það sem fyrir var.
02 Grindin
Svo kom flækjan
Shopify passaði ekki. Vefurinn var sérsmíðaður og átti að halda sér, greiðslurnar fóru í gegnum Straum, bókhaldið var í öðru kerfi og heildsalan gekk enn fyrir sig upp á gamla mátann. Hver tenging hefði orðið sérverkefni.
Fram undan voru líka skipti á kassakerfi og bókhaldskerfi, verkefni sem flestir fresta eins lengi og hægt er. Það sem vantaði var yfirsýn: allur reksturinn á einum stað.
Vefverslunin hefði bara orðið enn eitt kerfið.
03 Húsið
Eitt kerfi, frá grunni
Svarið var að smíða eitt kerfi frá grunni: vef, vefverslun, kassakerfi, heildsölu, birgðir og reikninga, á íslensku og í krónum. Eldra tengist greiðslumiðlun og bókhaldi sem fyrirtæki nota fyrir, svo ekki þarf að skipta öllu út í einu.
Fljótt kom í ljós að þörfin var miklu stærri en ein vefverslun. Það vantaði íslenskt kerfi sem heldur utan um allan reksturinn. Þannig varð Eldra til.
Ein spurning um vefverslun varð að einu kerfi fyrir allan reksturinn.
Grunnurinn
Það sem við trúum á.
- 01
Færri tengingar.
Hver tenging milli kerfa er einn staður í viðbót þar sem eitthvað getur farið úrskeiðis. Þegar allt er á einum stað stemma tölurnar.
- 02
Íslenskt frá grunni.
Íslensk póstnúmer, kennitölur, virðisaukaskattur og krónur eru ekki viðbætur. Þau eru hluti af kerfinu frá fyrsta degi.
- 03
Manneskja svarar.
Þú færð svar frá manneskju sem þekkir kerfið, ekki spjallmenni. Notið þið Teams? Þá tengjumst við ykkur beint þar.
- 04
Segðu okkur hvað vantar.
Vantar eitthvað? Segðu okkur það. Kerfið stækkar með þeim sem nota það.
Fyrirtækið
Eldra Tech ehf.
Íslenskt fyrirtæki í Reykjavík sem smíðar eitt kerfi fyrir allan reksturinn.
- Nafn
- Eldra Tech ehf.
- Kennitala
- 500826-1770
- Aðsetur
- Reykjavík
- Netfang
- eldra@eldra.is
Næsta skref
Heyrðu í okkur.
Segðu okkur frá rekstrinum og hvað þú vilt að kerfið geri.
Eða sendu póst á eldra@eldra.is