Fara beint í efnið

Bara vefur

Bara vefur.
Ekkert umstang.

Vefur sem segir frá rekstrinum og þú breytir þegar þér hentar, án þess að hringja í neinn. Ekkert kassakerfi, enginn lager, ekkert sem þú þarft ekki.

Vefurinn

Hannaður fyrir þinn rekstur.

Við hönnum vefinn út frá því sem þú gerir. Hjá lögmannsstofu er það þjónustan og fólkið, hjá kaffihúsi matseðillinn og opnunartíminn.

  • Útlitið í þínum litum og letri.
  • Á þeim tungumálum sem þú þarft.
Meira um heimasíðuna

Vefumsjón

Þú breytir textanum eins og í skjali.

Nýr starfsmaður eða breyttur opnunartími? Þú breytir textanum, ýtir á Birta og það er komið á vefinn.

  • Breytingar eru drög þar til þú birtir þær.
  • Nýjar síður úr einingum sem passa við útlitið.
Meira um vefumsjón

Viltu meira seinna?

Vefurinn er í sama kerfi og allt hitt. Ef þú vilt seinna selja á netinu eða taka við bókunum bætist það við vefinn sem þú ert með.

Uppsetning

Við smíðum vefinn. Þú tekur við.

Við hönnum vefinn með þér og sýnum þér vefumsjónina svo þú getir breytt efninu frá fyrsta degi.

  1. 1

    Fundur

    Við förum yfir hvað á að vera á vefnum.

  2. 2

    Smíðin

    Við setjum upp útlitið og efnið og þú segir til.

  3. 3

    Þú tekur við

    Þú breytir efninu í vefumsjóninni þegar þér hentar.

Algengar spurningar

Ég er með vef á WordPress. Hvað verður um hann?
Við flytjum efnið yfir og gömlu slóðirnar vísa á nýju síðurnar.
Hver hýsir vefinn og hvað með netföngin?
Við hýsum vefinn á léninu þínu. Netföngin haldast eins og þau eru.
Finnst vefurinn á Google?
Já. Hver síða fær titil og lýsingu fyrir leitarvélar.
Getur vefurinn verið á fleiri tungumálum?
Já, eins mörgum og þú þarft.
Hvar eru gögnin geymd?
Alltaf í Evrópu.
Get ég tekið efnið með mér?
Já. Allt efni vefsins má flytja út í einu lagi.

Næsta skref

Heyrðu í okkur.

Segðu okkur frá rekstrinum og hvað þú vilt að kerfið geri.

Eða sendu póst á eldra@eldra.is