Fyrir verslanir
Búðin og vefurinn.
Ein vöruskrá.
Seldu yfir afgreiðsluborðið og á netinu úr sömu vöruskrá. Það sem selst á Laugaveginum hverfur af vefnum um leið.
Föstudagur í Hnoða.
Hnoða selur prjónavörur á Laugaveginum og á hnoda.is.
- 01
Á kassanum
Sigrún selur ullarpeysu og húfu á iPadinum við afgreiðsluborðið.
- 02
Birgðirnar
Peysan dregst frá birgðunum, í búðinni og á vefnum.
- 03
Á vefnum
Síðdegis pantar Guðrún trefil á hnoda.is og greiðir með korti.
- 04
Sendingin
Trefillinn fer með Dropp og Guðrún fær póst þegar hann leggur af stað.
- 05
Yfirlitið
Salan úr búðinni og af vefnum sést saman í Studio.
Kassakerfi
Kassinn er iPad á afgreiðsluborðinu.
Kassinn selur úr sömu vöruskrá og vefurinn, og salan úr búðinni lendir í sömu skýrslu og pantanirnar af vefnum.
- Sala dagsins úr búðinni og af vefnum á einum skjá.
Kassi 1 á Laugaveginum, lokað klukkan 18:04.
Búnaður
Allt sem þarf á afgreiðsluborðið.
iPad á standi, kvittanaprentari, peningaskúffa og skanni koma í einum leigupakka fyrir hvern kassa. Posinn kemur frá færsluhirðinum þínum.
Skoða leigupakkannBirgðir
Sömu tölur, hvar sem salan fer fram.
Kassinn og vefurinn sjá sömu birgðir á hverjum stað. Þegar pöntun berst af vefnum er varan tekin frá svo enginn selur hana tvisvar.
- Viðvörun þegar lítið er eftir.
- Sendingin bókuð hjá Póstinum eða Dropp úr pöntuninni.
Uppsetning
Svona skiptið þið yfir.
Við flytjum vörurnar, myndirnar og birgðastöðuna yfir með ykkur.
- 1
Fundur
Við förum yfir hvernig þið seljið í dag, í búðinni og á netinu.
- 2
Vörurnar
Vörur, myndir, birgðastaða og viðskiptavinir færast yfir í Eldra.
- 3
Fyrsta salan
Næsta sala fer í gegnum Eldra, í búðinni og á vefnum.
Algengar spurningar
- Virkar kassinn ef netið dettur út?
- Já. Kassinn heldur áfram að selja og sendir söluna inn þegar netið kemur aftur.
- Virkar posinn minn með kassanum?
- Posinn kemur frá færsluhirðinum þínum og kassinn sendir upphæðina beint í hann.
- Get ég verið með fleiri en eina búð?
- Já. Hver búð hefur sína kassa og sína birgðastöðu.
- Get ég pantað sjálfkrafa frá birgjunum mínum?
- Það er á leiðinni. Þú setur reglurnar, til dæmis lágmark á lager, og pöntunin fer sjálf til birgisins.
- Hver hjálpar mér ef kassinn bilar um helgi?
- Við. Þú sendir okkur línu á Teams eða í tölvupósti og við förum strax í málið, líka á kvöldin og um helgar.
- Hvað verður um vörurnar og viðskiptavinina í gamla kerfinu?
- Við flytjum vörurnar, myndirnar, viðskiptavinina og birgðastöðuna yfir fyrir þig, og gömlu slóðirnar á vefnum vísa á þær nýju.
Næsta skref
Heyrðu í okkur.
Segðu okkur frá rekstrinum og hvað þú vilt að kerfið geri.
Eða sendu póst á eldra@eldra.is
Ullarpeysa · Kol
Húfa · Mosi
Lopapeysa · Sauðalitir
Vettlingar · Kol
Trefill · Hafrar
Ullarpeysa · Grá
Ullarpeysa · Blá
Húfa · Kol
Vettlingar · Rauðir
Ullarsokkar · Grá
Léttlopi · Hafrar
Sjal · Ljóst
Hálskragi · Mosi
Barnapeysa · Grá
Barnahúfa · Gul