1Glugginn
Vefurinn þinn, eins og þú vilt hafa hann.
Heimasíða og vefverslun í sama kerfi og búðin. Þú breytir texta og myndum í vefumsjóninni, raðar síðum í síðusmiðnum eða biður Claude um það.
- Heimasíða
- Vefumsjón
- Tölvupóstur
- Markaðsmál
Heimasíða, vefverslun, kassakerfi, bókanir, sölupantanir, birgðir, reikningar og skýrslur. Allt á einum stað. Íslenskt kerfi, smíðað á Íslandi fyrir íslenskan rekstur.
Þegar eitthvað kemur upp svarar manneskja, ekki spjallmenni.
Svona er þetta í dag
Vefverslun, þrjár viðbætur, kassakerfi, bókunarkerfi, bókhaldskerfi, reikningakerfi, reikningar í Word, pantanir í tölvupósti, viðskiptavinir og lager í Excel, póstlistakerfi, vefumsjón og greiningartól, tengd með afritun, CSV-skrám og handavinnu.
Með Eldra
Ein innskráning og allar tölurnar á einum stað. Göngum í gegnum reksturinn.
Hvert herbergi er hluti af rekstrinum. Byrjaðu á því sem þú þarft og bættu við þegar reksturinn stækkar.
1Glugginn
Heimasíða og vefverslun í sama kerfi og búðin. Þú breytir texta og myndum í vefumsjóninni, raðar síðum í síðusmiðnum eða biður Claude um það.
2Búðin
Kassinn, vefverslunin og bókanirnar selja úr sömu vöruskrá. Heildsalan tekur við sölupöntunum og sendir sölureikninga úr sama kerfi.
3Lagerinn
Um leið og eitthvað selst, í búðinni, á vefnum eða í heildsölu, uppfærist staðan á öllum stöðum. Sendingin fer af stað úr sama kerfi.
4Fundarherbergið
Fyrirtækin og fólkið sem þú selur, með tengiliðum, verðum og kjörum, og póstlistar af vefnum þar sem samþykkið er skráð.
5Skrifstofan
Reikningar fara út úr sama kerfi og salan fer beint í bókhaldið með réttum virðisaukaskatti. Skýrslurnar sýna allan reksturinn.
6Allt húsið
Vefurinn, búðin, lagerinn og bókanirnar. Leiðist þér bókhaldskerfið? Bókhald Eldra er á leiðinni.
Spurningin sem við fáum á hverjum fundi
Nei. Eldra keyrir ekki á Shopify, WooCommerce, WordPress eða Square. Þetta er okkar eigið kerfi, smíðað frá grunni á Íslandi fyrir íslenskan rekstur.
Smíðað frá grunni og tengt við það sem þú þekkir
Vefurinn
Yfirleitt við. En ef þú ert með forritara getur hann smíðað vefinn sjálfur á Eldra.
Það þarf ekki allt kerfið. Við setjum upp vefinn og þú breytir efninu þegar þér hentar. Ef reksturinn stækkar bætirðu vefverslun, bókunum eða kassa við í sama kerfi.
Búnaður
iPad á standi fylgir hverjum kassa í áskriftinni.
Við flytjum vörur, viðskiptavini og birgðir yfir með þér og þú heldur áfram að selja á meðan.
Þjónustan
Þú sendir okkur línu, á Teams eða í tölvupósti, og við förum strax í málið.
Engin málsnúmer og engin biðröð. Við erum líka til staðar á kvöldin og um helgar þegar á þarf að halda.
Vantar eitthvað? Segðu okkur það. Kerfið stækkar með þeim sem nota það.
Næsta skref
Segðu okkur frá rekstrinum og hvað þú vilt að kerfið geri.
Eða sendu póst á eldra@eldra.is