Peningarnir
Mánaðamótin hætta að vera vesen.
Reikningar og skýrslur í sama kerfi og salan. Það sem selst fer beint í bókhaldið með réttum virðisaukaskatti.
Reikningar
Reikningurinn fer út úr sama kerfi og salan.
Þú gefur út reikning með kennitölu og gjalddaga og krafan birtist í netbanka viðskiptavinarins. Þú sérð strax hvað er greitt og hvað ekki.
- Krafa í netbanka með hverjum reikningi.
- Reikningur úr sölupöntun með einum smelli.
Skýrslur
Allar tölurnar á einum stað.
Salan á vefnum, í búðinni og í heildsölu, bókanir og ógreiddir reikningar á einum skjá. Virðisaukaskatturinn er tekinn saman fyrir þig og vefgreiningin sýnir hvaðan gestirnir koma.
- Sala eftir sölurás og degi.
- VSK-yfirlit fyrir tímabilið.
Bókhaldstenging
Bókhaldið fær söluna sjálfkrafa.
Í dag fer hver sala og hver reikningur beint í bókhaldskerfið þitt, með réttum virðisaukaskatti.
- Endurgreiðslur fara sömu leið.
- Þú sérð á hverri færslu hvort hún skilaði sér.
Leiðist þér bókhaldskerfið þitt? Við nefnum engin nöfn.
Við erum að smíða bókhaldið inn í Eldra, í sama kerfi og salan.
Meira í kerfinu
Fólk finnur þig
Heimasíða sem þú breytir eins og þér hentar, og póstur sem nær til fólksins.
- Heimasíða
- Vefumsjón
- Tölvupóstur
Salan
Kassinn, vefverslunin, bókanirnar og sölupantanirnar selja úr sömu vöruskrá.
- Kassakerfi
- Vefverslun
- Bókanir
Vörurnar
Birgðirnar eru samstilltar í búðinni, á vefnum og á lagernum.
- Birgðir
- Sendingar
Viðskiptavinirnir
Viðskiptavinir með verðum og kjörum, og póstlistar með skráðu samþykki.
- Viðskiptavinir
- Póstlistar
Næsta skref
Heyrðu í okkur.
Segðu okkur frá rekstrinum og hvað þú vilt að kerfið geri.
Eða sendu póst á eldra@eldra.is