Fara beint í efnið

Fyrir bókanir

Bókað og greitt
á vefnum.

Fólk bókar námskeið, tíma eða ferðir á vefnum og greiðir um leið. Þú sérð hver kemur hvenær og hvað er laust.

Herbergið uppi í húsinu: hringborð og stólar undir súðinni, við glugga.

Eitt námskeið, frá bókun til reiknings.

Starfsmannafélagið Vaka vill senda fjóra starfsmenn á námskeið í rennslu hjá Leirstofunni. Svona fer það í gegnum Eldra.

  1. 01

    Á vefnum

    Tengiliður Vöku bókar fjögur pláss á námskeiðið á leirstofan.is.

  2. 02

    Rennibekkirnir

    Hvert þeirra fær sinn rennibekk, svo enginn er tvíbókaður.

  3. 03

    Staðfesting

    Hvert þeirra fær staðfestingu í tölvupósti með tíma og stað.

  4. 04

    Reikningur

    Vaka fær einn reikning á kennitöluna fyrir öll fjögur plássin.

  5. 05

    Bókhald

    Salan fer í bókhaldskerfið með réttum virðisaukaskatti.

Námskeið og tímar

Námskeið, tímar og ferðir.

Hvert námskeið, hver tími og hver ferð er þjónusta með sína lengd, verð og fyrirvara. Fólk velur tíma á vefnum, greiðir um leið og fær staðfestingu í tölvupósti.

  • Lágmarksfyrirvari og afbókunarfyrirvari sem þú ákveður.
  • Staðfesting í tölvupósti með tengli til að afbóka.
Meira um bókanir

Tungumál

Ferðamennirnir bóka á sínu tungumáli.

Leirstofan býður ferðamönnum prufutíma á ensku og þýsku. Þú skrifar hvern texta á hverju tungumáli í vefumsjóninni, gesturinn bókar á sínu máli og staðfestingin fer á því tungumáli sem bókað var á.

  • Hver þýðing við hliðina á íslenska textanum.
  • Titill og lýsing fyrir leitarvélar á hverju tungumáli.
Meira um heimasíðuna

Rými og búnaður

Rými, búnaður og starfsfólk.

Kennararnir, vinnustofan og rennibekkirnir eru bókunareiningar með sína vikudagskrá. Þegar vinnustofan er lokuð er ekkert hægt að bóka.

  • Starfsfólk, herbergi, búnaður eða rútur, hvert með sína dagskrá.
  • Kerfið velur lausan rennibekk.

Reikningar

Fyrirtækin fá reikning á kennitöluna.

Þegar fyrirtæki eða ferðaskrifstofa bókar fyrir sitt fólk sendirðu reikning á kennitöluna úr sama kerfi og bókanirnar. Hann fer í tölvupósti eða sem krafa í netbanka.

  • Reikningur á fyrirtækið, með kennitölu og tengilið.
  • Salan fer í bókhaldskerfið með réttum virðisaukaskatti.
Meira um reikninga

Uppsetning

Svona skiptir þú yfir.

Við förum yfir námskeiðin, tímana og rýmin, setjum upp vefinn og bókunina og flytjum viðskiptavinina yfir.

  1. 1

    Fundur

    Við förum yfir það sem þú býður og hvernig fólk bókar hjá þér í dag.

  2. 2

    Þjónustan

    Hvert námskeið, tími og ferð fær lengd, verð og fyrirvara, og rýmin sína dagskrá.

  3. 3

    Vefurinn

    Vefurinn settur upp með bókuninni, á þeim tungumálum sem þú þarft.

  4. 4

    Fyrsta bókunin

    Næsta bókun fer í gegnum Eldra.

Algengar spurningar

Geta margir bókað sama námskeiðið?
Já. Þú ákveður hvað mörg pláss eru á hverju námskeiði og hverjum tíma.
Er hægt að bóka námskeið sem stendur í nokkrar vikur?
Já. Fólk bókar allt námskeiðið í einu og greiðir einu sinni.
Greiðir fólk þegar það bókar?
Þú ræður því. Fólk getur greitt á vefnum um leið og það bókar eða greitt á staðnum.
Hvað ef einhver afbókar?
Þú ákveður fyrirvarann og gesturinn afbókar sjálfur með tengli í staðfestingunni.
Geta ferðamenn bókað á sínu tungumáli?
Já. Gesturinn bókar á sínu tungumáli og fær staðfestinguna á því máli.
Geta fyrirtæki fengið einn reikning fyrir hópinn?
Já. Fyrirtækið fær einn reikning á kennitöluna fyrir öll plássin.
Fæ ég vef með?
Já. Bókunin er á vefnum þínum og þú breytir efninu þegar þér hentar.

Næsta skref

Heyrðu í okkur.

Segðu okkur frá rekstrinum og hvað þú vilt að kerfið geri.

Eða sendu póst á eldra@eldra.is