Fyrir forritara
Þú smíðar vefinn.
Restin er til í Eldra.
Smíðaðu vefinn í því framework sem þú vilt. Vörurnar, karfan og efnið koma úr Eldra í gegnum TypeScript SDK og greiðslan fer fram á greiðslusíðu Eldra.
$npm install @eldrajs/sdk @eldrajs/vue
- Opinn kóði, MIT-leyfi
- Á npm undir @eldrajs
- Enginn API-lykill
Ekki með forritara? Við smíðum vefinn fyrir þig. Heyrðu í okkur
<script setup lang="ts">import { createEldraClient } from '@eldrajs/sdk';import { EldraImage } from '@eldrajs/vue'; const { eldraOrgId } = useRuntimeConfig().public;const eldra = createEldraClient({ orgId: eldraOrgId }); const { data: products } = await useAsyncData('haustlina', async () => (await eldra.catalog.listCollectionProducts('haustlina')).data);</script> <template> <ul class="grid"> <li v-for="product in products" :key="product.id"> <EldraImage :src="product.thumbnail" :alt="product.title" sizes="(min-width: 1024px) 25vw, 50vw" :aspect-ratio="4 / 5" /> <h3>{{ product.title }}</h3> </li> </ul></template>Allt á npm undir @eldrajs.
Kóðinn er opinn í headless-kit á GitHub. Þú getur lesið hann, fylgst með breytingum og sent inn lagfæringar.
@eldrajs/sdk
SDK
TypeScript client fyrir vörulistann, körfuna, efnið, pantanir og birgðir. Bara fetch, svo hann keyrir í vafra, í Node og á edge.
- Vite plugin sem býr til TypeScript types úr skemunum þínum við hvert build.
- Slóð á greiðslusíðuna fyrir körfuna.
- Forskoðunarlykill fyrir drög.
npm install @eldrajs/sdk@eldrajs/vue
Vue components
RichText og EldraImage fyrir Vue 3 og Nuxt, og í @eldrajs/ui eru Button, Input, Select, VariantPicker og fleiri. Útlitinu stýrirðu með CSS design tokens.
- RichText birtir rich text úr Studio, og þú getur skipt út hvaða node sem er.
- EldraImage með srcset í réttum stærðum.
- toHtml úr @eldrajs/rich-text ef þú notar ekki Vue.
npm install @eldrajs/vue @eldrajs/ui@eldrajs/theme-nuxt
Þemu fyrir síðusmiðinn
Þú smíðar einingarnar sem viðskiptavinurinn þinn raðar saman í síðusmiðnum. eldra-theme deploy sendir vefinn og einingarnar til Eldra.
- Hver eining er block.json og Vue component.
- eldra-theme CLI í @eldrajs/theme-cli: init, validate og deploy.
- Forskoðun í Studio á meðan efnið er í drögum.
npm install @eldrajs/theme-nuxt
Opinn kóði undir MIT-leyfi. Vantar eitthvað? Opnaðu issue á GitHub.
Vörur og karfa
Vörulistinn og karfan koma úr Eldra.
Vörur, flokkar, vörusöfn og leit koma úr sama vörulista og kassinn í búðinni notar. Karfan er geymd hjá Eldra, sem reiknar verð, afslætti og VSK.
- Enginn API-lykill. Eldra svarar bara lénum sem eru skráð í Studio.
- Responsive myndir í AVIF eða WebP.
- Birgðastaðan sú sama og kassinn sér.
Skemu
Þú skilgreinir efnið í Studio.
Skemu lýsa efninu á vefnum: námskeiðum, starfsfólki, algengum spurningum eða hverju sem vefurinn þarf. Þú skilgreinir reitina í Studio, viðskiptavinurinn þinn fyllir þá út í vefumsjóninni og Vite plugin-ið býr til TypeScript types úr þeim.
- Texti, rich text, myndir, tilvísanir, vallistar og fleira.
- Types verða til í .eldra/ við hvert dev og build.
- Forskoðunarlykill sýnir drögin áður en þau eru birt.
Webhooks
Nýtt build þegar efni er birt.
Ef vefurinn er static sendir Eldra webhook þegar eitthvað breytist, til dæmis cms.entry.published, og vefurinn er deployaður aftur. Deploy-webhook fyrir Cloudflare Pages bíður í mínútu og safnar breytingum saman.
- Atburðir fyrir efni, vörur, myndir, pantanir og bókanir.
- Undirritað með HMAC-SHA256.
- Misheppnaðar sendingar eru reyndar aftur og sjást í Studio.
MCP
Claude vinnur í Studio, með þeim heimildum sem eru stilltar þar.
Eldra er með MCP server, svo Claude getur lesið og breytt efni, vörum og birgðum. Í Studio er valið hvað Claude má gera, og Claude vinnur alltaf sem notandinn sem skráði sig inn, með sömu réttindi.
- Claude skrifar drög og birtir ekkert nema það sé leyft í Studio.
- Verð og birgðir aðeins ef kveikt er á því.
- Í Claude Code eða claude.ai, með Studio-aðgangi hvers og eins.
Greiðslusíðan
Greiðslan fer fram á greiðslusíðu Eldra.
Þú þarft ekki að smíða greiðsluferli. Þegar karfan er tilbúin færðu slóð á greiðslusíðu Eldra, þar sem kaupandinn velur afhendingu, greiðir og fær staðfestingu. Pöntunin birtist svo í Studio eins og hver önnur.
- Sent með Póstinum eða Dropp, eða sótt í búðina.
- Kortagreiðslur í gegnum færsluhirði verslunarinnar.
- Kortanúmer fara aldrei um þinn kóða.
Það sem þú þarft ekki að smíða.
Allt á bak við vefinn er þegar til í Eldra. Þú tengist því með SDK-inu.
Þú smíðar
Vefinn sjálfan.
Framework-ið. Nuxt, Vue, Astro eða bara HTML.
Útlitið. Hönnunin, letrið og hreyfingarnar eru þínar.
Hýsinguna. Hjá Eldra með eldra-theme deploy, eða hvar sem þú vilt.
Hvernig hann keyrir. Static, SSR eða blanda af hvoru tveggja.
Þú þarft ekki að smíða
Það er allt til í Eldra.
Vörulista og birgðir. Sama vöruskrá og kassinn í búðinni notar.
Körfu og greiðsluferli. Verð, afslættir og VSK reiknast í körfunni og greiðslusíðan tekur við greiðslunni.
Pantanir og sendingar. Pósturinn og Dropp eru þegar tengd.
Vefumsjón. Viðskiptavinurinn þinn breytir efninu sjálfur í Studio.
Algengar spurningar
- Þarf ég API-lykil?
- Nei. Vefurinn sendir auðkenni fyrirtækisins. Pantanir, karfa og bókanir koma bara frá lénum sem eru skráð í Studio.
- Er til OpenAPI-skjal?
- Já, á /api/public/openapi.json.
- Hvaða framework get ég notað?
- Hvaða framework sem er. Nuxt er best stutt.
- Get ég prófað Eldra?
- Heyrðu í okkur og við ræðum það.
- Get ég unnið með ykkur?
- Já. Við vinnum með sjálfstæðum forriturum og vefstofum og bjóðum þeim sérkjör. Heyrðu í okkur.
Næsta skref
Heyrðu í okkur.
Segðu okkur frá rekstrinum og hvað þú vilt að kerfið geri.
Eða sendu póst á eldra@eldra.is

Ullarpeysa · Kol
Húfa · Mosi
Vettlingar · Kol