Undirvinnsluaðilar
Verslanir sem nota Eldra Studio veita Eldra almenna heimild til að nota undirvinnsluaðila við vinnslu persónuupplýsinga fyrir þær (9. gr. vinnslusamningsins). Þetta er gildandi listi yfir þá.
Síðast uppfært
Microsoft (Azure)
- Vinnsla
- Rekur kerfið: netþjónar, gagnagrunnur, afrit, kerfis- og öryggisskrár og lyklageymsla.
- Persónuupplýsingar
- Allar tegundir í II. viðauka vinnslusamningsins.
- Staðsetning
- Svíþjóð (Azure-svæðið Sweden Central). Afrit gagnagrunns eru einnig vistuð á því Azure-svæði sem er parað við Sweden Central, innan EES.
- Miðlun út fyrir EES
- Engin samkvæmt fyrirmælum Eldra. Vinnslusamningur Microsoft heimilar Microsoft að miðla gögnum til Bandaríkjanna og annarra landa þar sem Microsoft eða undirvinnsluaðilar þess starfa. Microsoft lýsir afmarkaðri miðlun vegna öryggisvöktunar og þjónustubeiðna. Verndarráðstafanir: föst samningsákvæði framkvæmdastjórnarinnar (2021/914) eins og Microsoft hefur innleitt þau, og rammi ESB og Bandaríkjanna um persónuvernd.
Cloudflare, Inc., Bandaríkjunum
- Vinnsla
- Net framan við opinberar slóðir kerfisins (DNS, milliþjónn, eldveggur, Workers og myndaþjónusta), nema áframsendingar af rótarléni verslunar, sem fara beint á netþjónana í Svíþjóð; skráageymsla í R2 fyrir skrár og myndefni verslunarinnar, reikninga í PDF og safn atburðaskrár.
- Persónuupplýsingar
- Umferð á leið um netið; vistaðar skrár.
- Staðsetning
- Umferð er afgreidd á alþjóðlegu neti Cloudflare, á þeim stað sem næstur er gestinum. Vistaðar skrár eru í R2 í lögsögu ESB.
- Miðlun út fyrir EES
- Já, til Bandaríkjanna og annarra landa þar sem net Cloudflare afgreiðir umferð. Rammi ESB og Bandaríkjanna um persónuvernd (EU-US Data Privacy Framework); föst samningsákvæði framkvæmdastjórnarinnar (2021/914) samkvæmt vinnslusamningi Cloudflare þar sem ramminn á ekki við.
Plus Five Five, Inc. (Resend), Bandaríkjunum
- Vinnsla
- Sendir póst úr kerfinu: pöntunarstaðfestingar, kvittanir, reikninga, innskráningarpóst og herferðir.
- Persónuupplýsingar
- Netföng og nöfn viðtakenda, efni póstsins, reikningar í viðhengi.
- Staðsetning
- Bandaríkin. Öll gögn eru geymd þar.
- Miðlun út fyrir EES
- Já, til Bandaríkjanna. Rammi ESB og Bandaríkjanna um persónuvernd; föst samningsákvæði framkvæmdastjórnarinnar (2021/914) samkvæmt vinnslusamningi Resend til vara.
Amazon Web Services (Amazon SES og Amazon SQS)
- Vinnsla
- Sendir póst úr kerfinu og tekur við afhendingaratburðum. Skráð nú þegar; tekur við af Resend þegar Eldra flytur póstinn.
- Persónuupplýsingar
- Netföng og nöfn viðtakenda, efni póstsins, reikningar í viðhengi.
- Staðsetning
- Svíþjóð (AWS-svæðið eu-north-1, Stokkhólmur).
- Miðlun út fyrir EES
- Engin samkvæmt fyrirmælum Eldra. Samkvæmt vinnslusamningi AWS flytur AWS gögn ekki af því svæði sem valið er nema það sé nauðsynlegt til að veita þjónustuna eða til að fara að lögum eða bindandi fyrirmælum stjórnvalds. Verndarráðstöfun vegna miðlunar til lands sem ekki nýtur ákvörðunar um fullnægjandi vernd: föst samningsákvæði framkvæmdastjórnarinnar (2021/914) í þeim vinnslusamningi.
Tengingar sem verslunin velur
Þessar þjónustur eru ekki undirvinnsluaðilar Eldra. Verslunin velur þær, er sjálf með samning við hverja þeirra og gefur Eldra fyrirmæli um að senda þeim gögn með því að virkja tenginguna. Þær fá aðeins gögn ef verslunin virkjar þær. Hér kemur fram hvað Eldra sendir hverri þeirra.
- Greiðslur: Teya, Straumur, Verifone
- Fjárhæð og tilvísun. Kortaupplýsingar eru slegnar inn hjá greiðsluþjónustunni, ekki í Eldra.
- Afhending: Pósturinn
- Nafn viðtakanda, heimilisfang, símanúmer og netfang, og kennitala þegar hún er skráð.
- Afhending: Dropp
- Nafn viðtakanda, heimilisfang, símanúmer og netfang, og kennitala þegar hún er skráð.
- Bókhald: DK
- Nafn viðskiptavinar, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer, ásamt reikningum.
- Bókhald: Regla
- Reikningar og vörur. Á reikningum er nafn viðskiptavinar, heimilisfang og símanúmer.
- Banki: Arion banki
- Kröfur, ásamt kennitölu greiðanda.
- Cloudflare Turnstile með eigin lyklum verslunarinnar
- Það sem vélmennavörnin safnar úr vafra gestsins.
- Vefkrókar (webhooks) sem verslunin setur upp
- Gögn þeirra atburða sem verslunin velur, á þá slóð sem verslunin gefur upp.
- MCP-tenging
- Þau gögn sem verkfærið, sem verslunin tengir, les eða breytir um tenginguna.
- Efni sem verslunin fellir inn frá öðrum (til dæmis myndbönd eða kort)
- Ekkert frá Eldra. Vafri gestsins sækir efnið hjá veitandanum.
Breytingar á listanum
Áður en Eldra bætir við undirvinnsluaðila eða skiptir um hann fá eigendur hverrar verslunar tölvupóst með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara. Í póstinum kemur fram hver undirvinnsluaðilinn er, hvað hann mun gera, hvaða gögn hann fær og hvar hann vinnur þau.
Andmæli
Verslun getur andmælt breytingu innan þessara 30 daga. Eigandi sendir andmælin á privacy@eldra.is og segir hvernig breytingin snertir vernd persónuupplýsinga. Andmæli verslunin ekki innan 30 daga telst hún ekki andmæla breytingunni.
Eldra svarar andmælum innan 10 daga og segir hvort hún geti komið til móts við þau. Geti hún það ekki má verslunin, innan 14 daga frá svari Eldra, segja upp þeirri þjónustu sem breytingin snertir, eða samningnum í heild ef breytingin snertir hann allan. Uppsagnarfrestur gildir þá ekki, ekkert gjald er tekið fyrir að hætta og Eldra endurgreiðir gjöld sem greidd voru fyrir fram fyrir tímann á eftir. Nánar er fjallað um þetta í 9. gr. vinnslusamningsins á eldra.app/terms.